Hugbúnaðarsérfræðingur
Fiskistofa óskar eftir að ráða metnaðarfullan og þjónustulundaðan hugbúnaðarsérfræðing til starfa á upplýsingatæknisviði Fiskistofu í Hafnarfirði. Um er að ræða fullt starf. Fiskistofa er þjónustu- og eftirlitsstofnun með sex starfsstöðvar um landið.
Helstu verkefni:
- Forritun í Java og skyldum málum
- Greining verkefna og hönnun, sér í lagi framendalausna
- Nýsmíði, viðhald og þróun hugbúnaðarkerfa
- Þátttaka vinnuhópum og samskipti við hagsmunaaðila
Menntun- og hæfniskröfur:
- Menntun í upplýsingatækni eða skyldum greinum, háskólamenntun kostur
- Þekking og reynsla í Java forritun eða skyldum forritunarmálum skilyrði
- Þekking á forritun á móti Oracle grunnum kostur
- Þekking á Agile vinnuumhverfi kostur
- Góð samskiptahæfni, jákvætt viðhorf og geta til að starfa í hópi
- Góð skipulagshæfni, frumkvæði sem og lausnamiðuð hugsun
Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildur Ösp Gylfadóttir mannauðs- og fjármálastjóri eða Leifur Magnússon, sviðsstjóri upplýsingatæknisviðs í síma 5697900. Umsóknir sem hafa að geyma ferilskrá og kynningarbréf skulu sendast á netfangið starf@fiskistofa.is eða með bréfi til Fiskistofu, Dalshrauni 1, 220 Hafnarfirði merkt „Hugbúnaðarsérfræðingur“
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 31. október 2016.