Hugbúnaðarsérfræðingur
Borgun er framsækið fjármálafyrirtæki sem er leiðandi í þróun og hagnýtingu lausna á sviði rafrænnar greiðslumiðlunar og fjártækni. Við leitum að metnaðarfullum hugbúnaðarsérfræðingi sem mun gegna lykilhlutverki í þróun hugbúnaðarlausna fyrirtækisins. Viðkomandi þarf að vera tilbúinn til að axla ábyrgð og sýna frumkvæði í starfi til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni.
Helstu verkefni:
- Nýsköpun, þróun og innleiðing hugbúnaðarlausna
- Samþætting og umbætur á lausnum í rekstri
- Bestun fyrirspurna og hámörkun afkasta
- Samskipti við viðskiptaeiningar Borgunar og samstarfsaðila
- Unnið er með .NET, .NET Core, SQL Server, REST og SOAP þjónustur og margt fleira
Hæfniskröfur:
- Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði, verkfræði eða sambærileg
- Mjög góð þekking og reynsla af forritun í .NET / .NET Core á öllum lögum (e. full stack)
- Reynsla af þróun og rekstri gagnagrunna á SQL Server
- Reynsla af notkun TFS og GIT
- Reynsla af notkun IIS
- Þekking á eftirlitskerfum er kostur
- Ástríða fyrir hugbúnaðargerð
- Frumkvæði, drifkraftur, fagleg, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Geta til þess að starfa sjálfstætt og í hóp
- Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurjón Þráinsson, þróunarstjóri, í síma 859-7969. Umsóknum skal skila á vef Borgunar, https://www.borgun.is. Umsóknafrestur er til og með 8. desember.