Hugbúnaðarsérfræðingar | Forritari | Software Developer

Sjúkratryggingar Íslands óska eftir að ráða tvo metnaðarfulla og kraftmikla hugbúnaðarsérfræðinga. Sjúkratryggingar vinna í verkefnamiðuðu vinnuumhverfi þar sem rík áhersla er lögð á góðan aðbúnað starfsmanna. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Hugbúnaðarþróun í samstarfi við birgja á sviði upplýsingatækni
-
Uppbygging fram- og/eða bakendalausna
-
Vinna við samþættingu hugbúnaðarkerfa og hugbúnaðareininga
-
Þátttaka í uppbyggingu rekstrarinnviða fyrir hugbúnaðarlausnir
-
Þátttaka í rekstri hugbúnaðarlausna
-
Þátttaka í þarfagreiningu fyrir þróun á hugbúnaðarlausnum
-
Vinna í kviku umhverfi og stuðla að stöðugum umbótum hugbúnaðarlausna
Hæfnikröfur
-
Grunnmenntun á háskólastigi á sviði verkfræði, tölvunarfræði eða sambærilegt nám
-
Framhaldsmenntun kostur
-
Þekking og reynsla af hugbúnaðarþróun
-
Þekking á a.m.k. einu forritunarmáli s.s. .NET, Python, PHP, JavaScript og/eða Java
-
Þekking á JavaScript framendatækni s.s. Angular, React, Vue.js og/eða Node.js kostur
-
Þekking á a.m.k. einni tegund af vensluðum grunnum s.s. MS SQL Server, MySQL, PostgreSQL og/eða Oracle Database
-
Þekking á óvensluðum grunnum s.s. MongoDB eða sambærilegu kostur
-
Þekking að vinna með kóðageymslur s.s. Bitbucket eða Github
-
Reynsla að vinna með Jira og Confluence við stýringu og úrvinnslu verkefna
-
Reynsla af sjálfvirkum prófunum kostur
-
Góð ensku- og íslenskukunnátta í ræðu og riti
-
Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
-
Skipulagshæfileikar og öguð vinnubrögð
-
Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
Sækja um starf
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Sótt er um starfið á www.sjukra.is/starf. Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferliskrá ásamt kynningarbréfi. Öllum umsóknum verður svarað þegar niðurstaða um ráðningu liggur fyrir. Ráðning tekur mið af jafnréttisáætlun stofnunarinnar. Umsókn gildir í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðu hennar www.sjukra.is
Starfshlutfall er 100 %
Umsóknarfrestur er til og með 29.10.2021