Hreyfihönnuður
Íslenska auglýsingastofan óskar eftir að ráða til sín hreyfihönnuð.
Viðkomandi skal vera opinn fyrir því að umgangast stórkostlega samstarfsfélaga og viðhalda vinsamlegu starfsumhverfi.
Hæfniskröfur: Kunnátta í After effects/hype/edge skilyrði. 3D kunnátta er kostur. Framenda-forritun er kostur (HTML – XHTML – HTML5). Mikill áhugi á öllu öðru er óþarfur en ekki endilega verri.
Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur
Umsóknarfrestur er til 1. september 2017 og er fyllsta trúnaðar gætt. Umsóknir sendist á starf@islenska.is
Íslenska leggur áherslu á árangur viðskiptavina sinna og byggir öflugt skapandi starf á sterkum faglegum grunni, vandaðri ráðgjöf og markvissum rannsóknum.