Gagnaforritari
Við leitum að gagnaforritara til að starfa hjá Já og Gallup með mikinn áhuga á gögnum, flæði þeirra og framsetningu.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Þátttaka í spennandi þróunarstarfi Já og Gallup
-
Rekstur á núverandi kerfum
Menntunar- og hæfniskröfur
-
Brennandi áhugi á gögnum og gagnaframsetningu
-
Reynsla af vinnu með SQL gagnagrunna, vöruhús gagna og greiningartól
-
Áhugi á tækniþróun og metnaður til að vaxa í starfi
-
Eftirsótt tæknikunnátta, en ekki nauðsynleg: Snowflake, Looker, Airflow, AWS, Postgres, R, Python og Docker
Fríðindi í starfi
-
Öll þau tæki og tól sem þú þarft til vinnu
-
Góð laun
-
Fyrirmyndar vinnuaðastaða og mötuneyti
-
Sveigjanlegur vinnutími
-
Fjölbreytt og spennandi úrval þróunarverkefna
-
Ótakmarkað magn af kaffi
-
Frjálsir dagar og lærdómsdagar til að kynna þér nýja hluti og vinna í því sem þér finnst áhugavert
Já býður upp á lausnir sem auðvelda viðskipti og samskipti og er vefurinn Já.is ein þeirra. Gallup er leiðandi markaðsrannsóknafyrirtæki á Íslandi og býður upp á lausnir sem auðvelda fyrirtækjum og stofnunum ákvarðanatöku.
Áhersla Já og Gallup á stafræna þróun þýðir að vöruframboðið okkar tekur stöðugum breytingum. Til að mæta þeim áskorunum styðjum við og hvetjum starfsfólk til að þróast og læra í starfi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Veigar Hrafnsson, sviðsstjóri gagna og greininga, olafur.hrafnsson@gallup.is
Sækja um starf
Umsóknir skulu sendast á olafur.hrafnsson@gallup.is