Full-stack forritari

Moodup 9. Jun 2023 Hlutastarf

Moodup leitar að full-stack forritara til að þróa áfram og bæta SaaS sem mælir starfsánægju fyrir vinnustaði. Stack er Postgres/Node/TypeScript/React. Um er að ræða 50% stöðugildi og í boði er að vinna hluta þess í fjarvinnu.

Helstu verkefni

  • Forgangsröðun og þróun nýrrar virkni (bæði fram- og bakendi)
  • Samskipti og tæknileg þjónusta fyrir viðskiptavini (t.d. villulagfæringar og endurbætur á núverandi virkni)
  • Ýmis tilfallandi verkefni tengd vöru- og viðskiptaþróun

Hæfni

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi (t.d. tölvunar-, kerfis-, verk-, eðlis- eða stærðfræði)
  • Að lágmarki 2ja ára starfsreynsla við hugbúnaðarþróun
  • Þekking á Postgres/SQL, TypeScript og React
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Gott vald á rituðu máli bæði á íslensku og ensku
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • DevOps reynsla er kostur (t.d. Linux, VPS og networking)

Um Moodup

Moodup er ungt og ört vaxandi hugbúnaðarfyrirtæki sem mælir starfsánægju hjá 35.000 starfsmönnum á 100 vinnustöðum. Moodup sendir starfsfólki reglulegar kannanir þar sem það tjáir sig í skjóli nafnleyndar. Stjórnendur geta síðan skoðað, greint, rætt og unnið með niðurstöður mælinga í mælaborði til að bæta starfsumhverfið. Sjá nánar á www.moodup.is.

Tveir starfsmenn eru hjá Moodup í dag: framkvæmdastjóri og sölustjóri. Við leitum að þriðju manneskjunni sem vill koma inn í teymið og vinna með okkur. Við erum með skrifstofu í Sjávarklasanum úti á Granda, sem er samvinnurými (e. coworking space) með 70 fyrirtækjum.

Nánari upplýsingar

Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Moodup, bjorn@moodup.is, s. 868-5259.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Umsóknarfrestur er til og með 25. júní.

Vinsamlegast sendu ferilskrá ásamt stuttri lýsingu eða kynningarbréfi á netfangið starf@moodup.is.