(Framenda)forritari
Um starfið
Starfið felst í þróun og viðhalds á notendaviðmóti og hugbúnaðarlausn fyrir flugskóla og flugrekendur.
Um er að ræða hlutastarf eða fullt starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Starfssvið
-
Hönnun á appi, skrifað í Angular 3, Javascript, Ionic (multi-platform iOS, Android)
-
Þróunarvinna og viðhald á bakenda eftir þörfum
-
Hönnun útlits framenda og virkni í samvinnu við UX designer og samstarfsaðila
Hæfniskröfur
Réttur aðili hefur reynslu í eða áhuga á að tileinka sér:
-
C#
-
Angular 2+ og Javascript
Einnig:
-
Þekking og reynsla af gagnvirknis- og viðmiðmótshönnun
-
Þekking á vefstöðlum
-
Þekking og reynsla af almennt viðurkenndum venjum í hugbúnaðarþróun
-
Þekking og reynsla af vafraforritunarmálum, þ.m.t. umbreytt mál (e. transpiled)
-
Þekking og reynsla af gagnaframsetningu er æskileg
-
Háskólapróf í tölvunarfræði, grafískri hönnun eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi er kostur
-
Góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar
Flugakademía Keilis
Flugakademía Keilis býður upp á fjölbreytt flugtengt nám í framsæknum skóla sem undirbýr nemendur fyrir störf í alþjóðlegu umhverfi. Lögð er áhersla á nútímalega kennsluhætti og eru kennsluvélar og flughermar skólans þær nýjustu og tæknivæddustu á landinu. Staðsetning skólans við alþjóðaflugvöllinn í Keflavík felur í sér einstaka aðstöðu til kennslu flugtengdra greina.
Sækja um starf
Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2018 og skulu umsóknir berast til: snorri@keilir.net Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Snorri P Snorrason í síma 898 2137 eða snorri@keilir.net