Forritari

Kolibri leitar að forritara sem deilir með okkur ástríðu fyrir því að þróa framsækinn, notendamiðaðan hugbúnað. Við styðjum við sjálfræði í vali á tólum og aðferðum og okkur finnst alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt og læra. Við skrifum mest í TypeScript, bæði í framenda og bakenda og notum aðallega React/Next.js í framenda.
Við leitum að fólki sem:
- Hefur ástríðu fyrir þróun hugbúnaðar sem er framsækinn í tækni og getur staðist tímans tönn.
- Hefur hæfileika til að tileinka sér nýjar aðferðir í hugbúnaðarþróun.
- Hefur drífandi áhuga á nýjustu tækni.
- Er forvitið, sjálfstætt og hneigt til aðgerða.
- Er tilbúið að biðja um aðstoð samstarfsfólks.
Um vinnustaðinn
Hjá Kolibri er unnið í opnu og nánu starfsfyrirkomulagi þar sem allir hafa möguleika á að láta til sín taka. Við trúum að góð aðstaða og aðbúnaður skipti miklu máli þegar kemur að því að búa til vörur á heimsmælikvarða, og að lýðræðislegt stjórnkerfi sem byggir á dreifðum ábyrgðum stuðli að vellíðan og vinnugleði. Við bjóðum m.a. upp á:
- Háklassa búnað sem starfsfólk velur sjálft, hvort sem það er tölva, skjár, sími, eða eitthvað annað.
- Frábæra staðsetningu miðsvæðis í Reykjavík.
- Hollan og góðan mat frá veitingastöðum bæjarins.
- Mikið frjálsræði.
- Faghópamenningu þar sem við lærum hvert af öðru.
- Frístundastyrk, samgöngustyrk, o.fl. eftir þörfum.
- Gegnsæi sem gerir starfsfólki kleift að skoða bókhald, tekjur og útgjöld, laun samstarfsfólks, o.s.frv.
Sækja um starf
Vinsamlega sendið umsóknir og spurningar á hiring@kolibri.is