Forritari
Við hjá Sendiráðinu viljum bæta við okkur metnaðarfullum og skemmtilegum fram og / eða bakenda- forritara sem vill vinna hjá framsæknu fyrirtæki í fjölbreyttum og spennandi verkefnum.
Umsækjendur þurfa að vera vel kunnugir nýjustu tækni og vinna vel í hóp þar sem mikil áhersla er lögð á teymisvinnu hjá okkur í Sendiráðinu.
Hæfni og reynsla
- Bachelor gráða í Tölvunarfræði eða samskonar menntun
- Þekking á og reynsla af vinnu í hugbúnaðarteymi
- Þekking og reynsla á útgáfustýringu t.d. með Git
Frábærir eiginleikar
- Javascript, HTML og CSS
- Góð þekking á .NET
- Góð kunnátta á ReactJS, Sass, NodeJS, Redux
- Almenn reynsla af vinnu með E-commerce og/eða CMS kerfi
- Góða þekkingu á stöðlum og aðgengi vefja
Sendiráðið er hugbúnaðarstofa upp á Höfðabakka sem er troðfull af sköpunarkrafti og skemmtilegu fólki sem samanstendur af hönnuðum, forriturum og ráðgjöfum sem hafa alhliða þekkingu á hugbúnaðarþróun og starfrænum verkefnum.
Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur
Vinsamlegast sendið starfsumsóknir á hrafn@sendiradid.is fyrir 15 janúar