Forritari

Stefna ehf 16. Aug 2024 Fullt starf

Stefna leitar að lausnarmiðaðri manneskju sem brennur fyrir forritun og hugbúnaðarþróun til að slást í hóp öflugs teymis forritara sem þjónustar viðskiptavini Stefnu. Við leitum að manneskju sem er fljót að tileinka sér nýja þekkingu og aðferðir, hefur gagnrýna hugsun og ríka þjónustulund. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Stefna sérhæfir sig í stafrænum lausnum fyrirtækja, opinberra stofnana, sveitarfélaga og félagasamtaka. Hjá Stefnu starfar teymi sérfræðinga í öllu sem viðkemur hugbúnaðargerð; greining, hönnun, vefun, forritun og ráðgjöf. Við erum sveigjanleg og útsjónarsöm, setjum okkur vel inn í þarfir viðskiptavina, finnum lausn sem hentar hverju sinni og höfum það að markmiði að uppfylla þarfir þeirra sem gera kröfur. Við viljum að okkar fólki líði vel í vinnunni og því skiptir það okkur máli að skapa faglegt og traust starfsumhverfi.

Helstu verkefni:
-Forritun og hugbúnaðargerð
-Prófanir
-Ráðgjöf til viðskiptavina Stefnu

Menntunar- og hæfniskröfur:
-Háskólamenntun kostur
-Þekking og reynsla af object oriented forritun
-Reynsla af forritunarmálum eins og Java, Kotlin, PHP8, C#….
-5 ára starfsreynsla af forritun og hugbúnaðarþróun nauðsynleg


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Umsóknarfrestur er til og með 30. ágúst nk. Umsóknir eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og verður öllum umsóknum svarað. Nánar upplýsingar eru gefnar í gegnum starf@stefna.is

Hægt er að sækja um starfið hér: https://alfred.is/starf/erum-vid-ad-leita-ad-ther-24