Forritarar í stafrænum lausnum
Við leitum að árangursdrifnum og lausnamiðuðum forriturum til að taka þátt í að þróa og hanna með okkur nýjar lausnir í okkar stafrænu vegferð. Framundan eru spennandi verkefni við hönnun og þróun stafrænna lausna. Verkefnin eru fjölbreytt og unnin í náinni samvinnu við viðskiptavini, reynslumikla ráðgjafa og sérfræðinga úr öðrum einingum VÍS.
Viðkomandi mun tilheyra deildinni stafrænar lausnir en í deildinni starfar metnaðarfullt teymi og hlaut VÍS m.a. nýlega íslensku vefverðlaunin fyrir app ársins og tæknilausn ársins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í tölvunar-, kerfis-, verkfræði eða önnur sambærileg menntun
- Reynsla af forritun í .Net eða Java
- Reynsla í OutSystems forritun er kostur, ekki skilyrði
- Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og hluti af teymi
- Hæfni til að hugsa í lausnum og umbótum
- Sýnir frumkvæði og lætur sér málin varða
- Hefur gaman að læra nýja hluti og takast á við áskoranir
- Skipulag og fagmennska í vinnubrögðum
- Góð færni í ensku, bæði rituðu máli og töluðu
Það sem við höfum upp á að bjóða
- Framúrskarandi vinnustað með einstaka vinnustaðamenningu
- Fyrirmyndarfyrirtæki með áherslu á jafnrétti
- Nýsköpunarumhverfi því við elskum hugrekki
- Fyrirtæki sem hugsar til framtíðar með því að leggja áherslu á sjálfbærni
- Tækifæri til þess að vaxa og dafna bæði í lífi og starfi
Sækja um starf
Nánari upplýsingar veitir Ingólfur Þorsteinsson, forstöðumaður stafrænna lausna, netfang ingolfur@vis.is. Umsóknarfrestur er til og með 4.desember 2022. Við hvetjum öll sem uppfylla hæfniskröfur til að sækja um, óháð kyni. Fullum trúnaði er heitið og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum starfasíðuna okkar á www.vis.is .