Forritarar
Við leitum að forriturum í Data teymi (Data Engineer), til að þróa með okkur nýjar lausnir í spennandi og fjölbreyttu tækniumhverfi. Við leitum að starfsfólki með brennandi áhuga á að skapa framúrskarandi lausnir og þörf fyrir að læra sífellt nýja hluti. Jafnframt að búa yfir sterkri tæknilegri þekkingu og hafa mikið frumkvæði.
Viðkomandi munu tilheyra Data teymi á upplýsingatæknisviði en teymið hefur það hlutverk að viðhalda gagnalagi bankans (Data Platform), útbúa lausnir fyrir lögbundin skil til eftirlitsaðila og samþættingar á milli kerfa.
Helstu verkefni:
- Þróun á hugbúnaði í samræmi við greiningu og hönnun
- Samþætting lausna og uppbygging á gagnalagi bankans
- Smíði og framkvæmd einingaprófana sem og sjálfvirkra þýðinga
- Kóðarýni hjá öðrum forriturum
- Gerð tæknilýsinga
Hæfniskröfur:
- Háskólamenntun á sviði tölvunar-, kerfis-, verkfræði eða önnur sambærileg menntun
- Reynsla af þróun og prófun hugbúnaðar
- Þekking á Agile og Scrum aðferðafræðinni er kostur
- Þekking á MS SQL, SSIS og Git æskileg
- Þekking á BIML og .NET er kostur
- Sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð
- Góðir samskiptahæfileikar og áhugi á teymisvinnu
Nánari upplýsingar um starfið veitir Marsibil Ingibjörg Hjaltalín, forstöðumaður Data, (marsibil.hjaltalin@arionbanki.is) og Birna Dís Birgisdóttir, mannauðsráðgjafi, (birna.birgisdottir@arionbanki.is).
**Umsóknarfrestur er til og með 7. maí. **
Fullum trúnaði er heitið og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Sækja um starf
Sótt er um hér: https://www.arionbanki.is/bankinn/vinnustadurinn/saekja-um-starf/