Bakendaforritari
Við leitum að bakendaforritara í banka- og verðbréfahóp á upplýsingatæknisviði bankans. Hópurinn ber ábyrgð á viðhaldi og þróun á helstu kerfum bankans ásamt ýmsum sérlausnum eins og t.d. Auði, Kviku appinu og Lykli. Starfið felur í sér forritun tengdum almennum bankaviðskiptum eins og bankareikningum, greiðslum, útlánum, verðbréfum og fleira.
Ef þú hefur metnað til að takast á við krefjandi verkefni, hefur áhuga á fjármálastarfsemi og sækist í að kynnast flóknu tækniumhverfi, ásamt því að hafa drifkraft til að þróa öflugustu fjártæknilausnir landsins gætum við verið að leita að þér.
Helstu verkefni og ábyrgð:
– Rekstur og þróun á hugbúnaðarlausnum bankans
– Þáttaka í umbóta- og samþættingarverkefnum
– Þáttaka í vöruþróun
– Greining og hönnun hugbúnaðarlausna
Menntunar- og hæfniskröfur:
– Háskólamenntun í tölvunarfræði eða verkfræði
– Meira en 3 ára starfsreynsla í hugbúnaðarþróun
– Reynsla af SQL
– Reynsla af C# eða Python kostur
– Góðir samskiptahæfileikar
– Skipulags- og aðlögunarhæfni í fjölbreyttu og krefjandi umhverfi
Tæknistakkur
Framendi: Typescript, React, React Native, NextJS, Expo, Vercel
Bakendi: .NET, Python, SQL, Docker, CI/CD ferlar, AWS
Kvika er öflugur banki með mikla áherslu á nýsköpun og stafrænt vöruframboð. Starfsumhverfið einkennist af samvinnu og liðsheild, með áherslu á frumkvæði starfsfólks og tækifæri til að starfa með fjölbreyttum hópi sérfræðinga með víðtæka reynslu.
Sækja um starf
Nánari upplýsingar um starfið veitir Björk Hauksdóttir, hópstjóri banka- og verðbréfahóps, bjork.hauksdottir@kvika.is.
Sótt er um starfið á umsóknarvef Kviku
Umsóknarfrestur er til og með 7. nóvember.