Verkefnastjóri

Sendiráðið 4. May 2015 Fullt starf

Viltu starfa hjá skemmtilegu og framsæknu hugbúnaðarfyrirtæki?

Sendiráðið leitar að framúrskarandi verkefnastjóra í fullt starf.

Eina sem þú þarft að hafa er:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af þjónustu við viðskiptavini
  • Hæfileiki og vilji til að tileinka sér mikla þekkingu á tæknilegum innviðum
  • Vilji til að læra og takast á við nýja hluti
  • Góð íslenskukunnátta jafnt í ræðu sem riti
  • Einstaka söluhæfileikar og þjónustulund
  • Framúrskarandi samskiptafærni, sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfni

Hjá Sendiráðinu starfar flottur hópur sérfræðinga sem vinnur markvisst að því að bæta upplifun notenda á veraldarvefnum. Við bjóðum gott vinnuumhverfi og skemmtilegan vinnustað.

Framundan eru skemmtileg og krefjandi verkefni með metnaðarfullum samstarfsaðilum.


Upplýsingar fyrir umsækjendur

Umsóknir skal senda á netfangið hallo@sendiradid.is

Fullum trúnaði heitið.