Vefforritari

Hagstofa Íslands 3. Feb 2015 Fullt starf

Hagstofa Íslands leitar eftir forritara. Viðkomandi þarf að hafa þekkingu á vefforritun, sérstaklega í .NET umhverfinu. Hagstofan heldur úti vefjum og öðrum sértækum veflausnum og felst starfið í viðhaldi og framþróun þeirra.

Menntunar- og hæfniskröfur

• Háskólamenntun í tölvunar-, kerfisfræði eða sambærilegum greinum er mikill kostur
• Mjög góð þekking á .NET forritun
• Mikil þekking á vefstöðlum svo sem CSS, JSON, Javascript, JQuery
• Reynsla af gagnagrunnsforritun er kostur
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
• Reynsla teymisvinnu er kostur
• Góðir samskipta- og samstarfshæfileikar

Um er að ræða fullt starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Laun eru skv. kjarasamningi fjármálaráðuneytisins og hlutaðeigandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til og með 23. 2. 2015. Umsóknir skulu sendar á eftirfarandi póstfang: Hagstofa Íslands, starfsumsókn, Borgartúni 21a, 150 Reykjavík. Einnig má senda umsóknir rafrænt á netfangið starfsumsokn@hagstofa.is.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Arnar Þórðarson í síma 5281000.

Hagstofa Íslands er miðstöð opinberrar hagskýrslugerðar á Íslandi. Hlutverk Hagstofunnar er að vinna hlutlægar hagskýrslur, hafa forystu um samhæfingu hagtalna, stunda rannsóknir og stuðla þannig að upplýstri umræðu og faglegum ákvörðunum. Nánari upplýsingar má finna á www.hagstofa.is


Upplýsingar fyrir umsækjendur

Umsóknir skulu sendar á eftirfarandi póstfang: Hagstofa Íslands, starfsumsókn, Borgartúni 21a, 150 Reykjavík. Einnig má senda umsóknir rafrænt á netfangið starfsumsokn@hagstofa.is.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ólafur Arnar Þórðarson í síma 5281000.