Sumarstarf — Marketplace samþættingar

50skills 11. May 2026 Fullt starf

Um starfið

50skills leitar að sumarstarfsmanni til að efla Journeys Integration Marketplace – safn tilbúinna samþættinga sem gerir viðskiptavinum okkar kleift að tengja mannauðs-ferla sína við önnur kerfi (Slack, BambooHR, Greenhouse, DocuSign og fjölmörg fleiri).

Þú munt byggja samþættingar frá A til Ö: stilla auðkenningu, kortleggja API-endapunkta, skilgreina webhooks og skrifa hjálpargreinar sem útskýra hvernig hver samþætting virkar. Þetta er kjörið starf fyrir nemanda eða nýútskrifaða manneskju sem hefur áhuga á því hvernig SaaS-vörur tala saman, hefur gaman af því að lesa skjölun og vill kynnast því hvernig nútíma vöruteymi vinnur.

Verkefni

  • Byggja nýjar samþættingar í marketplace með því að stilla endapunkta, auðkenningu (OAuth2, API-lykla, bearer tokens o.fl.) og webhooks
  • Lesa og túlka API-skjölun frá þriðju-aðilum
  • Hafa samband við söluaðila eftir þörfum til að fá sandbox-aðganga, prófunaraðgang eða nánari skýringar á API-um
  • Skrifa skýrar hjálpargreinar fyrir viðskiptavini um hverja samþættingu sem þú gefur út
  • Prófa samþættingar enda á milli áður en þær eru birtar
  • Vinna með vöru- og þróunarteyminu þegar verkefni krefjast dýpri tæknilegrar aðkomu

Reynsla og hæfni

  • Kunnátta við að lesa tækniskjölun á ensku
  • Grunnskilningur á því hvað API er og hvernig auðkenningaraðferðir (OAuth, API-lyklar o.s.frv.) virka – eða áhugi á að læra það fljótt
  • Skipulagning og sjálfstæði – mikið af vinnunni er unnið sjálfstætt og þér er treyst til að leysa úr hlutum áður en þú spyrð
  • Góð skrifleg tjáning, bæði í tölvupóstum til söluaðila og í hjálparefni fyrir viðskiptavini
  • Hentar vel fyrir nema eða nýútskrifaða í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði, upplýsingatækni eða skyldri grein

Aðrir kostir

  • Einhver reynsla af API-tengingum (Postman, skólaverkefni, áhugaverkefni)
  • Þekking á OAuth2 ferlinu
  • Reynsla af því að skrifa tækniskjölun eða leiðbeiningar

Fríðindi

  • Frír hádegismatur og snakk á skrifstofunni alla daga
  • Sveigjanlegur vinnutími
  • Samkeppnishæf laun
  • Raunveruleg vara, raunverulegir viðskiptavinir og raunveruleg ábyrgð frá fyrsta degi

Um 50skills

50skills er ungt fyrirtæki í örum vexti sem hjálpar mannauðsteymum að sjálfvirknivæða ferla sína og skapa eftirminnilega upplifun fyrir starfsfólk.

Við leitum að réttu manneskjunni til að ganga til liðs við okkur í sumar og leggja sitt af mörkum frá fyrsta degi. Við erum drífandi og nýjungagjörn – en fyrst og fremst frábært teymi af fagmanneskjum sem elskar það sem það gerir.

Við viljum hafa vinnustaðinn okkar eins fjölbreyttan og hægt er og hvetjum fólk af öllum kynum og uppruna til að sækja um.

Skrifstofur okkar eru í Kópavogi.

Spurningar?

Fyrirspurnir um starfið má senda á Andra Janusson, tæknistjóra (andrijan@50skills.com)


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Tilvalið fyrir nema og nýútskrifaða.