Sérfræðingur á Tækniborð

Basis ehf 28. Oct 2014 Fullt starf

Við óskum eftir sérfræðingi til að slást í hóp með okkur í skemmtilegasta fyrirtæki landsins í hýsingu og rekstri. Starfið felur í sér úrlausn vandamála hjá viðskiptavinum Basis, daglegan rekstur netbúnaðs og sértækra Microsoft kerfa ásamt ábyrgð á lausnum og/eða tölvukerfum viðskiptavina okkar.

HÆFNISKRÖFUR
• Reynsla af rekstri Microsoft lausna
• Góð þekking á útstöðva rekstri
• Microsoft prófgráður
• CCNA er kostur

Við leitum að sterkum einstaklingi sem er búinn að sanna sig í faginu og langar að takast á við ný og áhugaverð verkefni í sveigjanlegu fyrirtæki.

UM BASIS
Við leggjum mikla áherslu á starfsmannaánægju og erum stolt af því að vera í hópi efstu fyrirtækja landsins í könnun VR á ári hverju. Við bjóðum eftirfarandi:
• Frábæra vinnu- og afþreyingaraðstöðu
• Mikla starfsþróunarmöguleika og virka endurmenntun
• Frábæran starfsanda í þéttum hópi
• Sveigjanlegan vinnutíma
• 10% af vinnutíma í starfsþróun- og gæluverkefni

Ef þú býrð að frumkvæði, hefur hæfni í mannlegum samskiptum og úrlausn tæknilegra vandamála og vilt takast á við nýjar áskoranir og auka við þekkingu þína, þá viljum við heyra frá þér.


Upplýsingar fyrir umsækjendur

Vinsamlegast sendið umsóknir með tölvupósti á atvinna@basis.is fyrir 9. nóvember n.k. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál