Liðsstjóri Samþættingateymis
Hugbúnaðarþróunardeild Sýnar leitar að öflugum liðsstjóra til að slást í hópinn og leiða samþættingateymi í spennandi verkefnum.
Í þessu starfi færðu tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á tæknilega stefnu og útfærslu lausna, leiða öflugt teymi og taka virkan þátt í að móta framtíð stafrænnar þjónustu Sýnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veita tæknilega leiðsögn og stuðning innan þróunarteymisins
- Þátttaka í mótun á tæknilegum arkitektúr og kerfislandslangi í samræmi við þarfir
- Þátttaka í framþróun, samþættingu og viðhaldi stafrænna lausna
- Greina og fjarlægja hindranir sem hafa áhrif á framgang verkefna
Menntunar- og hæfniskröfur
- BSc gráða í tölvunarfræði eða verkfræði kostur
- Reynsla á bakenda forritun og þekking á gagnagrunnum
- Reynsla á samþættingu milli kerfa
- Reynsla í að beita DevOps hugmyndafræði
- Reynsla á Temporal eða sambærilegum ferlakerfum mikill kostur
- Jákvætt viðhorf og framúrskarandi samskiptahæfni
Það sem við höfum upp á að bjóða
- Krefjandi og spennandi tæknilega vegferð
- Metnaðarfullt og hæft teymi með skýra tæknilega stefnu
- Líflegur og skemmtilegur vinnustaður með frábært mötuneyti
Fríðindi í starfi
- Frábæra vinnufélaga
- Framúrskarandi vinnuaðstöðu
- Mötuneyti á heimsmælikvarða
- Internet- og farsímaáskrift
- Streymisveitu Sýnar og Viaplay
- Árlegan heilsustyrk
- Símtækjastyrk
- Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
- Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu
Við hvetjum áhugasöm af öllum kynjum til að sækja um í gegnum ráðningavefinn okkar. Umsóknarfrestur er til og með 7. september 2026.
Fyrir nánari upplýsingar má senda póst á mannaudur@syn.is
Hver erum við?
Sýn er leiðandi afl á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Hjá Sýn sameinum við það besta úr heimi tækni og afþreyingar og breytum hversdagsleikanum í upplifun. Það er betra að vera með Sýn – hvort sem þú ert að horfa, hlusta, vafra eða vinna.
Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.
Sækja um starf
Hægt er að sækja um hér