Hugbúnaðarþróun og öryggismál

Kvikna Medical 7. Jan 2026 Fullt starf

Kvikna Medical ehf. vinnur að þróun og sölu á hugbúnaði og vélbúnaði fyrir heilalínurit (EEG) og eru viðskiptavinir fyrirtækisins um allan heim. Kvikna var fyrst fyrirtækja til að bjóða upp á skýjalausn fyrir heilalínurit og er enn í fararbroddi á alþjóðlegum markaði.
Við óskum eftir ráða að tæknilega sinnaðan einstakling til að hafa yfirumsjón með öryggismálum í hugbúnaðarþróun Kvikna Medical. Starfið felur í sér að tryggja og sýna fram á að hugbúnaður og vélbúnaður fyrirtækisins uppfylli kröfur og alþjóðlega staðla fyrir lækningatæki, samhliða þátttöku í hugbúnaðarþróun.

Frekari upplýsingar um Kvikna Medical ehf. má finna: Kvikna Medical

Helstu verkefni og ábyrgð:

Yfirumsjón með öryggismálum í hugbúnaðarþróun
Tryggja samræmi við staðla fyrir lækningatæki, m.a. IEC 81001-5-1 og AAMI SW96
Skjalfesting ferla í samvinnu við gæðastjóra
Samvinna við þróunarteymi um örugga hönnun
Þróun og viðhald hugbúnaðar

Menntunar- og hæfniskröfur:
Reynsla af hugbúnaðarþróun, helst í .NET / C#
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Áhugi á öryggismálum í hugbúnaðarþróun
Þekking á netöryggi (cyber security) er kostur
Góð enskukunnátta
Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
Starfið hentar sérstaklega einstaklingum með bakgrunn í hugbúnaðargerð eða forritun sem vilja þróa sig frekar í öryggis- og gæðamálum í víðara samhengi.

Umsóknarfrestur er til og með 15. janúar 2026 en unnið er úr umsóknum um leið og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Nánari upplýsingar veita Torfi Markússon (torfi@intellecta.is) og Birna Dís Bergsdóttir (birna@intellecta.is) í síma 511-1225.