Hugbúnaðarsérfræðingur / Software Developer

CodeBear ehf 15. Apr 2026 Fullt starf

CodeBear er lítil en öflug hugbúnaðarstofa á höfuðborgarsvæðinu.
Við sérhæfum okkur í forritun, kerfissamþættingu, gagnagrunnum og skýjaþjónustum. Helstu verkefnin okkar eru í orku- og heilbrigðisgeiranum en einnig hjá opinberum stofnunum.
Við erum að leita að hæfum hugbúnaðarsérfræðingi sem getur styrkt liðið okkar og tekist á við spennandi verkefni fyrir fjölbreytta viðskiptavini.

Helstu verkefni:
– Bakendaforritun í .NET
– Tæknileg ráðgjöf fyrir viðskiptavini

Hæfnikröfur:
– Menntun sem nýtist í starfi, æskilegt háskólapróf í tölvunarfræði eða skyldu sviði
– Að minnsta kosti 3 ára reynsla í .NET forritun
– Reynsla í SQL
– Mariokart
– Þekking á Azure og/eða AWS skýjaumhverfum er kostur
– Python þekking er kostur
– Reynsla í CI/CD ferlum er kostur

Við bjóðum upp á:
– Fjölbreytt og krefjandi verkefni
– Lítið og faglegt teymi með yfir þriggja áratuga sameiginlega reynslu
– Persónulegt og hreinskilið starfsumhverfi

Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið Starfshlutfall: Fullt starf
Umsóknir og fyrirspurnir sendist á: codebear@codebear.is


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Sendu ferilskrá og kynningarbréf á codebear@codebear.is