Grafískur hönnuður

Íslenska auglýsingastofan 2. Mar 2015 Fullt starf

Vegna aukinna umsvifa leitum við að hæfileikaríku fólki til að starfa
með öflugum hópi skapandi fólks á Íslensku auglýsingastofunni.

Íslenska leitar að grafískum hönnuði með að minnsta kosti
árs reynslu af vinnu á auglýsinga- eða hönnunarstofu.

Grafískur hönnuður fullhannar verkefni og
ber ábyrgð á frágangi til birtingar. Grafískur hönnuður er hugmyndaríkur,
listrænn, skipulagður, nákvæmur og metnaðarfullur.


Upplýsingar fyrir umsækjendur

Umsókn sendist rafrænt á starf@islenska.is Umsóknir berist ekki síðar en 8. mars 2015. Allar umsóknir eru trúnaðarmál.