Forritari

Hugsmiðjan 12. May 2015 Fullt starf

Við erum á þeim buxunum að ráða metnaðarfullan og snjallan javaforritara. Kostur ef viðkomandi þekkir til Agile verklags og hefur reynslu af hugbúnaðarþróun/vöruþróun.

Hjá Hugsmiðjunni starfa 26 starfsmenn sem búa yfir einstakri sérfræðiþekkingu á sviðum aðgengilegrar hönnunar, vefsamskipta og hugbúnaðarhönnunar.

Við leggjum okkur fram um að vera fyrsta flokks vinnustaður sem laðar að sér framúrskarandi starfsfólk.


Upplýsingar fyrir umsækjendur

Áhugsamir vinsamlegast sendið ferilskrá á starf@hugsmidjan.is