Forritari

Námsmatsstofnun 28. Mar 2014 Fullt starf

Námsmatsstofnun óskar eftir að ráða tölvu-eða kerfisfræðing í fullt starf forritara.

• Góð þekking á Python, Javascript og Jquery.
• Reynslu af Twisted, Jinja2 og MongoDB er kostur.
• Sjálfstæð vinnubrögð.
• Hæfni í mannlegum samskiptum og samvinnu við aðra starfsmenn.

Meginverkefni er nýsmíði og viðhald vefkerfa stofnunarinnar.

Gerðar eru kröfur um háskólamenntun eða sambærilega menntun og reynslu af viðhaldi og nýsmíði vefkerfa.


Námsmatsstofnun er sjálfstæð stofnun sem heyrir stjórnarfarslega undir menntamálaráðherra. Hlutverk stofnunarinnar er að annast framkvæmd samræmdra könnunarprófa, alþjóðlegra rannsókna á sviði menntamála, ytra mats á grunnskólum auk fleiri verkefna. Fyrir dyrum stendur að stofnunin renni inn í nýja stjórnsýslustofnun ásamt Námsgagnastofnun auk þess að fleiri verkefnum verður bætt við starfssvið nýju stofnunarinnar. Í störfunum felast því möguleikar á að takast á við spennandi verkefni á breytingartímum.


Upplýsingar fyrir umsækjendur

Nánari upplýsingar um starfið veita forstöðumaður eða sviðsstjóri upplýsinga- og tæknideildar í síma 5502400. Launa og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum ríkisstarfsmanna. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst.

Umsóknir berist til Námsmatsstofnunnar fyrir 5. apríl næstkomandi. Öllum umsóknum verður svarað.