Appforritari

Sýn 18. Aug 2026 Fullt starf

Ertu reynslumikill appforritari með ástríðu fyrir að smíða falleg og notendavæn öpp? Veflausnateymi Sýnar leitar að öflugum liðsmanni sem brennur fyrir góðri notendaupplifun til að slást í hópinn. Í þessu starfi færðu tækifæri til að vinna með fjölbreyttum tæknilausnum þvert á stýrikerfi og tæki, taka virkan þátt í að móta og bæta stafræna upplifun notenda Sýnar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þróun og viðhald á SÝN sjónvarpsappinu þvert á öll stýrikerfi og tæki, þ.m.t. iOS, tvOS, Android, Android TV, Tizen og WebOS
  • Þátttaka í rekstri og þróun á öðrum öppum og vefjum félagsins
  • Þátttaka í tæknilegri endurnýjun og þróunarumhverfi appsins
  • Þróun í samvinnu við hönnuð, vörustjóra og aðra forritara

Menntunar- og hæfinskröfur

  • BSc gráða í tölvunarfræði eða verkfræði kostu
  • Reynsla af React Native þróun í Typescript fyrir iOS og Android
  • Reynsla á forritun fyrir snjallsjónvörp kostur
  • Reynsla á Expo er mikill kostur, þ.m.t. Expo Prebuild og EAS Build
  • Reynsla á app útgáfustjórnun í App Store og Google Play

Það sem við höfum upp á að bjóða

  • Krefjandi og spennandi tæknilega vegferð
  • Metnaðarfullt og hæft teymi með skýra tæknilega stefnu
  • Tækifæri til að hafa bein áhrif á vöru sem þúsundir Íslendinga nota daglega
  • Líflegur og skemmtilegur vinnustaður með frábært mötuneyti

Fríðindi í starfi

  • Frábæra vinnufélaga
  • Framúrskarandi vinnuaðstöðu
  • Mötuneyti á heimsmælikvarða
  • Internet- og farsímaáskrift
  • Streymisveitu Sýnar og Viaplay
  • Árlegan heilsustyrk
  • Símtækjastyrk
  • Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
  • Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu

Við hvetjum áhugasöm af öllum kynjum til að sækja um í gegnum ráðningavefinn okkar. Umsóknarfrestur er til og með 7. september 2026.

Fyrir nánari upplýsingar má senda póst á mannaudur@syn.is

Hver erum við?

Sýn er leiðandi afl á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Hjá Sýn sameinum við það besta úr heimi tækni og afþreyingar og breytum hversdagsleikanum í upplifun. Það er betra að vera með Sýn – hvort sem þú ert að horfa, hlusta, vafra eða vinna.

Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.


Sækja um starf
Upplýsingar fyrir umsækjendur

Hægt er að sækja um hér